Fróðlegur fundur með ráðherra í Saltfisksetrinu

Erindi þeirra voru mjög gagnleg og góð að sögn þeirra sem á hlýddu, þar sem þeir ræddu og svöruðu spurningum fundarmanna um framtíðaruppbyggingu fjarskipta og þróun kerfa í framtíðinni.
Í máli ráðherra kom m.a. fram að stefnt verði að því að allir landsmenn sitji við sama borð óháð búsetu. Einkarekin fyrirtæki standi undir uppbyggingarkostnaði, en tók þó fram að fjarskiptasjóði, sem stofnaður var með lögum frá Alþingi og hefur yfir talsverðum fjármunum að ráða, sé ætlað að koma að sérstökum þáttum. Þar má nefna t.d. að þétta dekkningu símkerfa utan alfaraleiða, bæta gervihnattasamband fiskiskipa og langdræga símakerfið, ýmsa öryggisþætti við netnotkun og þá þætti sem lúta að ríkisstofnunum.
Af heimasíðu Grindavíkurbæjar