Frítt í sund fyrir FS-inga
- Nemendur taki daginn snemma með sundferð
	 Reykjanesbær hefur ákveðið að meðan á verkfalli framhaldsskólakennara stendur verði nemendum í Fjölbrautarskóla Suðurnesja boðið frítt í Sundmiðstöðina/ Vatnaveröld alla morgna til kl. 12.00. Reykjanesbær vill stuðla að því að nemendur skólans taki daginn snemma með góðri sundferð. Frá þessu er greint á heimasíðu Reykjanesbæjar.

	„Brottfall nemenda við Fjölbrautaskóla Suðurnesja hefur minnkað verulega síðustu ár og því mikilvægt að það aukist ekki á nýjan leik vegna verkfallsins. Einn liðurinn í því er að nemendur taki ekki upp á því  að snúa sólarhringnum við,“ segir ennfremur á vefsíðu bæjarins.