Bygg
Bygg

Fréttir

Miðvikudagur 20. nóvember 2002 kl. 17:02

Frítt í strætó fyrir unga og aldna

Samkvæmt nýrri gjaldskrá sem bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt samhljóða fyrir næsta ár verður frítt í strætó fyrir öll börn og unglinga 18 ára og yngri. Einnig verður frítt fyrir ellilífeyrisþega. Þessi ákvörðun er tekin til að auðvelda börnum að nýta sér vagnana til og frá skóla, í íþróttir og tómstundastarf og hvetja til nýtingar strætisvagna í Reykjanesbæ. Þá hafa ellilífeyrisþegar lítið notað vagnana og er vonast til að með þessu geti þeir í auknum mæli farið á milli staða án miðaumstangs og kostnaðar, segir í tilkynningu á vef Reykjanesbæjar.
Bílakjarninn
Bílakjarninn