Fréttir

Frítt fyrir íbúa í báðar sundlaugar
Mynd: gardurogsandgerdi.is
Þriðjudagur 31. júlí 2018 kl. 15:08

Frítt fyrir íbúa í báðar sundlaugar

Íbúar í Sandgerði annars vegar og Garði hins vegar hafa haft aðgang að sundlaug viðkomandi bæjar gegn framvísun íbúakorts. Frá og með 1. ágúst gilda kortin í báðum sundlaugum og eru íbúar hvattir til að kynna sér frábærar sundlaugar hins sameinaða sveitarfélags.
Þeir íbúar sem ekki eiga kort, geta nálgast þau í íþróttamiðstöðvunum.

Greint er frá þessu á heimasíðu sameinaðs sveitarfélags Garðs og Sandgerðis.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024