Fréttir

Frisbeegolfvöllur væntanlegur í Voga
Þriðjudagur 2. apríl 2019 kl. 09:18

Frisbeegolfvöllur væntanlegur í Voga

Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga samþykkti á fundi sínum í síðustu viku auglýsa grenndarkynningu fyrir íbúa nærri Aragerði vegna áforma um uppsetningu frisbeegolfvallar í og í grennd við garðinn. Upphaflega stóð til að þetta yrði 9 holu völlur, en nefndin ákvað að minnka hann og hafa brautirnar 7 talsins. 
 
Komi ekki fram athugasemdir við þessi áform munu körfurnar í kjölfarið verða settar upp, en búið er að festa kaup á þeim. Það mun því vonandi enn aukast framboðið á skemmtilegri afþreyingu útivið í Vogunum á næstunni.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024