Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

  • Fríhöfnin veitir styrki úr umhverfissjóði í fjórða sinn
  • Fríhöfnin veitir styrki úr umhverfissjóði í fjórða sinn
Fimmtudagur 9. júní 2016 kl. 16:17

Fríhöfnin veitir styrki úr umhverfissjóði í fjórða sinn

Í dag voru 13 styrkir veittir úr Umhverfissjóði Fríhafnarinnar við hátíðlega athöfn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þorgerður Þráinsdóttir, framkvæmdastjóri og Bjarklind Sigurðardóttir, sölu- og markaðsstjóri Fríhafnarinnar afhentu styrkina.

Þetta er í fjórða skipti sem styrkir eru veittir úr Umhverfissjóðnum. Sjóðurinn var stofnaður í maí árið 2012 með það að markmiði að styrkja verkefni á sviði umhverfisverndar, með áherslu á nærumhverfi Fríhafnarinnar. Tilgangur sjóðsins er að styrkja verkefni sem byggjast á sjálfboðaliðsstarfi eða frumkvæði félagasamtaka eða einstaklinga. Heildarfjárhæð styrkjanna var tvær milljónir og fimm hundruð þúsund krónur.

Eftirtöldu aðilar hlutu styrk úr sjóðnum:

Barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar Keflavíkur hlaut styrk til að vinna ötullega áfram við gróðursetningu við æfingarsvæðið fyrir aftan Reykjaneshöllina í Reykjanesbæ. Tilgangur er að fegra umhverfi og mynda skjól.

Blái herinn hlaut styrk til vinnu í nýja verkefninu þeirra „Hafskógar“ það er „úr sjó í skóg“ sem gengur út á að aðstoða sveitafélög, fyrirtæki og stofnanir við að hreinsa opin svæði. Eitt tré er gróðursett á móti hverjum 10 kílóum af plasti sem fjarlægð eru af viðkomandi svæði. Allt rusl er flokkað í réttan úrvinnsluflokk. Verndari verkefnisins er frú Vigdís Finnbogadóttir.

Golfklúbbur Sandgerðis hlaut styrk vegna hreinsunar á grjótgarði sem liggur meðfram vellinum ásamt því að gróðursetja plöntur á syðsta hluta vallarsvæðisins.

Golfklúbbur Suðurnesja hlaut styrk til áframhaldandi vinnu við uppgræðslu við Leiru, endurbætur á göngustígum og gróðursetningu trjáa.

Hæfingarstöðin, sem flutti í nýtt húsnæði fyrravor hlaut styrk, til að vinna að lóðinni við húsnæðið. Sú vinna snýr að því að setja niður skjólbelti með trjám og matjurtagarð sem nýtist fólkinu.

Heiðarskóli býður nemendum valgrein sem byggist á því að byggja upp og laga svæði við gömlu malarnámuna. Þau fá styrk til að gróðursetja plöntur, reisa skýli og búa til göngustíga. Svæðið verður hugsað sem útikennslusvæði og jafnframt útivistasvæði fyrir íbúa Reykjanesbæjar.

Heilsuleikskólinn Suðurvellir hlaut styrk til að laga útlit skólalóðar og götumyndar við Suðurgötu með því að laga eldri trjábeð og fjarlægja úr sér vaxin tré ásamt því að gróðursetja rifs- og sólberjarunna. Með þessu geta þau bætt inní dagskrána sína berjatínslu á haustin og fá í leiðinni gott skjól frá runnunum.

Knattspyrnudeild UMFN hlaut styrk til að halda áfram með þá vinnu að gróðursetja tré umhverfis íþróttasvæði deildarinnar við Afreksbraut í Reykjanesbæ.

Leikskólinn Tjarnarsel hlaut styrk til að vinna áfram í þróunarverkefninu „Áskorun og ævintýri“ sem hófst árið 2013. Þetta er samstarfsverkefni starfsfólks Tjarnarsels, leikskólabarna og foreldra þeirra. í ár rækta þau berjarunna, ávaxtatré, grænmeti og skapa fallega gróðurreiti á útileiksvæðinu.

Lionsklúbbur Njarðvíkur hlaut styrk til áframhaldandi gróðursetningar plantna og hreinsunar á útivistarsvæðinu Paradís við Grænásbrekku. Markmiðið er að byggja Paradísina enn frekar upp til almenningsnota og yndisauka.

Skógfell, skógræktar- og landgræðslufélag Vatnsleysustrandarhrepps, hlaut styrk til flutnings á húsi sem veitir mönnum vinnuaðstöðu. Húsið verður staðsett á Háabjalla. Skipta þarf um jarðveg og steypa undirstöður svo hægt sé að tryggja aðkomu flutningabíls til að koma húsinu fyrir.

Skógræktarfélag Grindavíkur hlaut styrk til uppsetningar skilta sem sýna helstu fuglategundir sem hafast við að staðaldri í Selskógi. Þetta er gert til að vekja athygli gesta skógarins á fuglalífinu.

Ungmennafélagið Þróttur hlaut styrk til áframhaldandi vinnu við trjárækt á Vogabæjarvelli til að mynda skjól fyrir komandi kynslóðir bæjarbúa. Starfið hófst sumarið 2014.

„Fríhöfnin óskar styrkþegum til hamingju og þakkar þeim fyrir þann dugnað og elju sem þeir sýna í verkum sínum, oft og tíðum í sjálfboðavinnu,“ segir í tilkynningu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024