Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

  • Fríhöfnin aftur sú besta í Evrópu
    Frá Fríhöfninni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
  • Fríhöfnin aftur sú besta í Evrópu
Fimmtudagur 27. nóvember 2014 kl. 14:43

Fríhöfnin aftur sú besta í Evrópu

Náði athyglisverðum árangri í rekstri og eða nýsköpun.

Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli hefur verið valin Besta fríhöfn í Evrópu í ár af tímaritinu Business Destinations og er það annað árið í röð. Verðlaunin eru flokkuð niður eftir heimsálfum og er framúrskarandi fyrirtækjum á ýmsum sviðum í hverri heimsálfu veitt viðurkenning. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fríhöfninni. 
 


Viðurkenningar meðal fríhafna árið 2014:  
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Evrópa – Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli
Norður-Ameríka - Duty Free Los Angeles International Airport    
Suður-Ameríka - Rio de Janeiro Galeao Duty Free  
Mið-Austurlönd - Dubai Duty Free  
Afríka - Dufry Sharm el-Sheikh Airport  
Eyjaálfa - SYD Airport Tax & Duty Free    



The Business Destinations Travel Awards, sem voru núna veitt í sjötta skipti, njóta virðingar í alþjóðlegri ferðaþjónustu. Sigurvegarar eru valdir með kosningu fjölmenns hóps áhrifamanna á sviði viðskiptaferðalaga. Yfirlýst markmið með veitingu verðlaunanna er að vekja athygli á þeim aðilum sem hafa náð athyglisverðum árangri í rekstri og eða nýsköpun og snjöllum lausnum á hinum ólíku sviðum ferðaþjónustunnar.
 


Sérstaða þessara verðlauna er fólgin í stærð dómnefndarinnar, sem er skipuð stórum og fjölbreytilegum hópi sérfræðinga úr viðskiptalífinu, m.a. stjórnendum viðskiptaferðalaga hjá 500 stærstu fyrirtækjum Bandaríkjanna (Fortune 500), félagsmönnum í Samtökum stjórnenda viðskiptaferðalaga (ACTE) og fleiri lykilmönnum á sviði viðskiptaferðalaga. Hópurinn leggur mat á þau fyrirtæki, sem hljóta tilnefningu, samkvæmt ákveðnum ströngum mælikvörðum.
 
Þau fyrirtæki sem hljóta tilnefningu Business Destinations eru valin afdómnefnd skipuð stjórnendum frá tímaritinu og búa þeir að samtals níutíu ára fjölmiðlareynslu af umfjöllun um viðskiptaferðalög og styðjast við mikið magn upplýsinga og gagna sem safnað hefur verið af starfsmönnum dómnefndarinnar.


Um Business Destinations


Í lesendahópi Business Destinations eru tæplega 100 þúsund eigendur fyrirtækja, forstjórar, stjórnendur og lykilstarfsfólk á sviði viðskiptaferðalaga og viðburðastjórnunar. Business Destinations er gefið út ársfjórðungslega. Business Destinations er í eigu fjölmiðlafyrirtækisins World News Media (WNM) sem hefur höfuðstöðvar í London, sérhæfir sig í þjónustu við viðskiptalífið og gefur út tímaritin World Finance, European Ceo og The New Economy, auk Business Destinations.