Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona

Fréttir

Friðþjófur Helgi Karlsson ráðinn skólastjóri Háaleitisskóla
Fimmtudagur 30. apríl 2020 kl. 14:42

Friðþjófur Helgi Karlsson ráðinn skólastjóri Háaleitisskóla

Friðþjófur Helgi Karlsson hefur verið ráðinn skólastjóri Háaleitisskóla. Þetta kemur fram á vef Reykjanesbæjar.

Friðþjófur Helgi lauk grunnskólakennaraprófi frá Kennaraháskóla Íslands árið 1997 og M.Ed. gráðu í uppeldis- og menntunarfræði með áherslu á stjórnun frá Háskóla Íslands árið 2019.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl

Hann starfaði sem aðstoðarskólastjóri í Hjallaskóla í Kópavogi árin 2003-2008 og sem skólastjóri við sama skóla 2008-2009, sem skólastjóri í Smáraskóla í Kópavogi árin 2009-2018 og sem deildarstjóri í Hraunvallaskóla í Hafnarfirði frá árinu 2019.

Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25