Friðjón í efsta sæti
Framboðslisti Samfylkingar klár í Reykjanesbæ
Á fjölmennum félgsfundi Samfylkingarinnar og óháðra í Reykjanesbæ í gær, var tillaga uppstillingarnefndar að framboðslista flokksins fyrir bæjarstjórnarkostningarnar í Reykjanesbæ 2014 samþykkt einróma. Friðjón Einarsson er efstur á lista en kynjahlutfallið er jafnt á öllum listanum, það á einnig við um efstu sex sætin sem sjá má hér að neðan.
1. Friðjón Einarsson,
57 ára bæjarfulltrúi, ráðgjafi og kennari, Suðurgötu 51
2. Guðný Birna Guðmundsdóttir,
32 ára hjúkrunarfræðingur og mastersnemi, Vallarási 19
3. Eysteinn Eyjólfsson,
47 ára bæjarfulltrúi og leiðbeinandi, Íshússtíg 6
4. Dagný Steinsdóttir,
52 ára framkvæmdastjóri, Túngötu 18
5. Sigurrós Antonsdóttir,
33 ára hársnyrtimeistari, Kirkjubraut 13
6. Gunnar Hörður Garðarsson,
25 ára stjórnmálafræðinemi, Erlutjörn 2
7. Jón Haukur Hafsteinsson,
33 ára forstöðumaður sérdeildar og stjórnunarfræðinemi, Skógarbraut 928
8. Jóhanna Sigurbjörnsdóttir,
42 ára fótaaðgerðafræðingur, Garðavegi 12
9. Ómar Jóhannsson,
33 ára þjálfari og nemi, Brekkubraut 5
10. Katarzyna Jolanta Kraciuk,
47 ára kennari, Heiðarvegi 19a
11. Teitur Örlygsson,
47 ára verslunarmaður og þjálfari, Melavegi 4
12. Heba Maren Sigurpálsdóttir,
31 ára þroskaþjálfi, Heiðarholti 26a
13. Hinrik Hafsteinsson,
19 ára stúdent, Hraunsvegi 23
14. Valgeir Ólason,
42 ára vakt- og björgunarstjóri, Reykjanesvegi 6
15. Elínborg Herbertsdóttir,
42 ára kennari, Álsvöllum 10
16. Elfa Hrund Guttormsdóttir,
42 ára félagsráðgjafi, Lágmóa 18
17. Arnbjörn H. Arnbjörnsson,
48 ára trésmíðameistari, Melavegi 13
18. Margrét Blöndal,
43 ára hjúkrunarfræðingur, Garðavegi 7
19. Vilborg Jónsdóttir,
32 ára þroskaþjálfi og sérkennslustjóri, Hæðargötu 14
20. Bjarni Stefánsson,
41 ára málarameistari, Íshússtíg 14
21. Ásmundur Jónsson,
68 ára rafvirki, Hlíðarvegi 60
22. Erna Þórdís Guðmundsdóttir,
76 ára kennari, Hjallavegi 5c