Fréttir af Ásbrú á 8 síðum
Átta síður af fréttum frá Ásbrú í Reykjanesbæ fylgdu Víkurfréttum í dag. Þar eru fréttir af því helsta sem er að gerast á Ásbrú þessa dagana.
Ásbrú mun iða af lífi um helgina þegar þar verður haldin atvinnu- og nýsköpunarhelgi sem hefst á morgun, föstudag og stendur til sunnudagskvölds.
Í blaðinu er einnig kynning á nýju atvinnuþróunarfélagi á Suðurnesjum sem heitir Heklan. Þá er kynning á námsframboði hjá Keili og fjallað um BRYN ballett akademíuna. Þá er sagt frá frumkvöðlum og nokkrum fyrirtækjum sem starfa á Ásbrú.
Blaðaukann um Ásbrú má nálgast hér á pdf-sniði.