HSS
HSS

Fréttir

FRÉTTASKÝRING: VOPNIN KVÖDD
Fimmtudagur 28. október 2004 kl. 10:49

FRÉTTASKÝRING: VOPNIN KVÖDD

Nær öll vopn flotastöðvar Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli hafa verið flutt úr landi. Starfsemi stöðvarinnar mun dragast mikið saman á næstu árum. Langstærstur hluti sjóliða flotastöðvarinnar mun flytjast frá Íslandi á næstu 18 mánuðum. Ljóst er að mörg störf Íslendinga munu tapast við niðurskurðinn. Gert er ráð fyrir að flugherinn taki yfir starfsemi stöðvarinnar árið 2006.

Í grein sem birtist í dagblaðinu Stars and Stripes sem gefið er út af bandaríska varnarmálaráðuneytinu kemur fram að miklar breytingar séu í vændum innan herstöðva Bandaríkjahers í Evrópu. Í greininni kemur fram að starfsemi flotastöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli muni dragast verulega saman og að hluti starfsemi stöðvar-innar verður flutt til herstöðva í Evrópu.

Scott Schonauer, annar blaðamannanna sem skrifaði greinina í Stars and Stripes segir heimildarmenn sína fullyrða að starfsemi stöðvarinnar í Keflavík muni breytast mikið á næstunni. „Heimildarmenn mínir segja að þrátt fyrir að stöðin loki ekki alveg þá verði starfsemi hennar mun minni í framtíðinni en hún er í dag,” sagði Scott í samtali við Víkurfréttir.

Vopnin til Spánar og Ítalíu
Nær engin vopn eru eftir á flotastöðinni. Síðustu vikur hafa vopnin verið flutt með Hercules flutningavélum til herstöðva Bandaríkjamanna á Spáni og Ítalíu. Víkurfréttir hafa undir höndum gögn sem sýna nákvæma lista yfir vopn sem flutt hafa verið, alls tæp 30 tonn á 46 vörubrettum. Á listunum má sjá tugþúsundir byssukúlna, mikið af sprengjum, skotvopnum og öðrum vopnabúnaði. Mikillar leyndar gætti við flutning vopnanna og í gögnum Víkurfrétta er lýst ánægju yfir því hve lítil athygli beindist að flutningunum og að allt hafi gengið vel fyrir sig.

Nýr yfirmaður kemur úr flughernum í fyrsta sinn
„Aðmírállinn sem er æðsti maður flotastöðvarinnar lætur senn af störfum og í hans stað kemur lægra settur yfirmaður flughersins. Það sem er óvenjulegt við þetta er að alla tíð hafa yfirmenn flotastöðvarinnar komið úr bandaríska flotanum en ekki úr flughernum eins og nú er að gerast,” segir heimildarmaður Víkurfrétta. Gert er ráð fyrir að yfirmannsskiptin fari fram í nóvember.
Sami heimildarmaður segir að innan flughersins sé lögð á það mikil áhersla að Íslendingar fái ekki að vita af fyrirætlunum þess efnis að flugherinn taki yfir starfsemi stöðvarinnar. „Flugherinn mun taka yfir öryggisþátt stöðvarinnar sem haldið verður í lágmarki. Sjóliðarnir fara heim; þoturnar verða eftir og deildirnar sem tilheyra þeim.”

Niðurskurður  - 24 sagt upp
Nær allir viðmælendur Víkurfrétta innan Bandaríkjahers segja það á allra vörum að flotadeildin sé á förum frá stöðinni og að flugdeildin muni taka yfir starfsemina. Hermenn og fjölskyldur þeirra sem koma frá Keflavík til annarra herstöðva í Evrópu fullyrða að verið sé að skera starf-semi stöðvarinnar mikið niður.
Tuttugu og fjórum starfsmönnum flugþjónustudeildar flotastöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli verður sagt upp á næstu vikum. Þann 1. mars verður rekstur deildarinnar boðinn út og mun nýr verktaki taka við 1. maí. Helstu verkefni þessarar deildar hafa verið að þjónusta vöruflutningavélar hersins.
Innan deildarinnar starfa varaslökkviliðsmenn sem hafa verið þjálfaðir með það að markmiði að geta tekið þátt í björgunar- og slökkvistörfum ef flugslys ber að höndum.

Gert ráð fyrir 26 sjóliðum
Háttsettir yfirmenn Varnarliðsins hafa rætt það opinberlega á fundum að árið 2006 verði einungis 26 sjóliðar á varnarstöðinni. Hafa yfirmennirnir látið hafa það eftir sér að reynt verði að draga úr þessari fækkun. Heimildarmaður Víkurfrétta segir hinsvegar að það sé einungis gert til mála-mynda; verið sé að friða starfsmenn stöðvarinnar.  Á fjórða hundrað manns, sjóliðar og fjölskyldur þeirra fóru af varnarstöðinni í sumar. Ekki hafa neinir sjóliðar komið í stað þeirra sem fóru og segja heimildarmenn Víkurfrétta það almenna stefnu Varnarliðsins að sjóliðar séu hægt og rólega að yfirgefa stöðina.

Verið að skoða kostnaðarliði vegna yfirtöku Íslendinga á flugbrautum og rekstri þjónustudeilda
Flugbrautir Keflavíkurflugvallar hafa frá upphafi verið undir umsjón flotastöðvarinnar og kostnaður vegna þjónustudeilda flugbrautarinnar verið greiddur af Bandaríkjastjórn. Davíð Oddsson utanríkisráðherra hefur sagt að það væri eðlilegt að það yrði skoðað að Íslendingar tækju þátt í kostnaði vegna reksturs flugbrautanna í kjölfar aukinnar alþjóðlegrar flugumferðar um Keflavíkurflugvöll.
Víkurfréttir hafa heimildir fyrir því að nú þegar sé hafin vinna við að skoða kostnaðarliði vegna hugsanlegrar yfirtöku íslenskra flugmálayfirvalda á flugbrautum og þjónustudeildum. Talið er að viðræður um yfirtökuna hefjist upp úr áramótum.

Landinu skilað
Fjallað er um niðurskurð á flotastöðinni á Keflavíkurflugvelli í skýrslu sem ríkisendurskoðun Bandaríkjanna gerði um opinber útgjöld Bandaríkjastjórnar til varnarmála á erlendri grundu. Einnig kemur fram í skýrslunni að þremur landsspildum sem hafa verið í umsjá Varnarliðsins verði skilað til íslenskra stjórnvalda. Samkvæmt heimildum Víkurfrétta er þar um að ræða svæði við Grindavík, Patterson flugvöllinn og svæði í Hvalfirði.
Áætlanir Bandaríkjastjórnar eru kunnar um að færa herstöðvar sínar nær átakasvæðum og er sérstaklega getið í skýrslunni um niðurskurð stöðvarinnar í Keflavík í framhaldi af því.


 


Eftir Jóhannes Kr. Kristjánsson • [email protected]
Litmyndir: Oddgeir Karlsson • Svart/hvítar myndir: Hilmar Bragi

Bílakjarninn
Bílakjarninn