HSS
HSS

Fréttir

Fréttaannáll Víkurfrétta 2016
Föstudagur 6. janúar 2017 kl. 11:45

Fréttaannáll Víkurfrétta 2016

Hér í fréttaannáll Víkurfrétta er stiklað á stóru um nokkur mál sem voru í fréttum á nýliðnu ári.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Sigvaldi Lárusson maður ársins

Víkurfréttir völdu lögreglumanninn og göngugarpinn Sigvalda Arnar Lárusson mann ársins 2015 á Suðurnesjum. Hann tók við viðurkenningunni stuttu eftir áramót. Sigvaldi lét gott af sér leiða með því að ganga frá Keflavík til Hofsóss og safna pening fyrir langveik börn. Þegar hann kom á leiðarenda fylgdi honum hópur fólks líkt og Forrest Gump í samnefndri kvikmynd. Sigvaldi komst oftar en einu sinni í fréttirnar á árinu 2015 sem „dýralöggan“, ýmist vegna útkalla tengdum uglu, nýfæddum kettlingum, köttum í brennandi íbúð eða hundi sem var farþegi bíls sem lenti í árekstri.

 

Frá íbúafundi um mengun frá kísilveri United Silicon í Helguvík. VF-mynd/Pket

Hiti í íbúum vegna brunalyktar frá kísilveri United Silicon
Kveikt var upp í bræðsluofni kísilvers United Silicon í Helguvík í október. Upp úr miðjun nóvember fóru íbúar Reykjanesbæjar að finna fyrir lyktar- og reykmengun og bárust Umhverfisstofnun margar ábendingar vegna þess. Þegar verið var að kynda upp í ofninum voru tréflísar brenndar og stafaði lyktin af því auk þess sem byrjunarörðugleikar voru nokkrir. Haldinn var fjölmennur íbúafundur í Stapa í desember þar sem íbúum gafst kostur á að bera fram spurningar til fulltrúa fyrirtækisins, Umhverfisstofnunar og Reykjanesbæjar. Fundurinn stóð í þrjá tíma en þá var mælendaskrá lokað.

 


Sameiningarmál í umræðunni á árinu

Sameiningar sveitarfélaga á Suðurnesjum hafa verið töluvert í umræðunni á árinu. Á aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum í október síðastliðnum lagði meirihluti Reykjanesbæjar fram tillögu um að gerð yrði könnun á kostum og göllum sameiningar sveitarfélaga á Suðurnesjum. Grindvíkingar, Sandgerðingar og Garðmenn lögðust eindregið gegn henni en fulltrúi Voga studdi tillöguna. Í nóvember bárust svo fréttir af því að stofnaður hefði verið starfshópur um að kanna kosti og galla sameiningar Sandgerðis og Garðs. Áætlað var að vinna hans tæki stuttan tíma og því aldrei að vita nema niðurstaðan liggi fyrir á næstunni. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, sagði á dögunum í viðtali við Víkurfréttir að hann telji fjárhagsstöðu bæjarfélagsins líklegustu ástæðu þess að Reykjanesbæ hafi ekki verið boðið að taka þátt í sameiningarviðræðunum en að þær geti eflaust verið fleiri. „Fólk hefur tilfinningar til síns uppruna. Við þekkjum það á milli hverfa í Reykjanesbæ. Þó að sameining hafi átt sér stað fyrir 22 árum síðan þá eru ennþá til heitir Keflvíkingar og sömuleiðis heitir Njarðvíkingar og örugglega heitir Hafnabúar líka. Á sínum tíma voru einhverjir sem töldu sameiningu í Reykjanesbæ rangt skref.“


Ráðhús Reykjanesbæjar.

Reykjanesbær samdi við kröfuhafa
Reykjanesbær náði samningum við kröfuhafa eignarhaldsfélagsins Fasteignar nú í lok árs um skilmála samkomulags eftir strangar samningaviðræður á árinu. Viðræðum við kröfuhafa Reykjaneshafnar er ekki lokið en verður haldið áfram. Það lítur því út fyrir bjartari tíma í rekstri bæjarfélagsins.

 

Íbúum á Suðurnesjum hefur fjölgað mikið undanfarin misseri. Í Vogum hefur fjölgaði íbúum um 5,3% á árinu. Myndin var tekin á Ljósanótt í Reykjanesbæ en þar hefur íbúum líka fjölgað mikið líkt og í hinum sveitarfélögunum á svæðinu.

Margir nýir Suðurnesjamenn
Suðurnesjamönnum hefur fjölgað mikið á árinu. Í júní greindu Víkurfréttir frá því að íbúum í sveitarfélögunum fimm á Suðurnesjum hefði þá fjölgað um 628 á árinu og hlutfallslega mest í Vogum. Nú í desember var ljóst að íbúum í Vogum hafði fjölgað um 5,3 prósent á árinu.
Á landsvísu eru innflytjendur fjölmennastir á Suðurnesjum eða 16 prósent íbúa. Sé miðað við landið í heild þá eru innflytjendur 9,6 prósent íbúa. Pólverjar eru fjölmennastir innflytjenda, bæði á Suðurnesjum og á landinu öllu.

 


Róbert Ragnarsson lét af störfum sem bæjarstjóri Grindavíkur á árinu. Hann hafði gegnt því í sex ár. Fannar Jónasson tók á dögunum við starfinu.

Bæjarstjóri Grindavíkur látinn fjúka
Það gustaði um Róbert Ragnarsson, fyrrum bæjarstjóra Grindavíkur á árinu og náðust samningar um starfslok hans í nóvember. Róbert hafði gegnt starfi bæjarstjóra í Grindavík í sex ár. Það olli titringi þegar hann flutti frá Grindavík til höfuðborgarsvæðisins síðasta haust og kom uppsögnin í kjölfarið. Auglýst var eftir bæjarstjóra og sóttu tuttugu og tveir um, þar af aðeins tvær konur. Fannar Jónasson var ráðinn bæjarstjóri og tók til starfa nú um áramót.

 


Fulltrúar Mýr design og GeoSilica fóru í góða ferð til Indlands og mynduðu tengsl við aðila í viðskiptalífinu þar í landi.

Frumkvöðlar í útrás til Indlands
Nýsköpunarfyrirtækin Mýr Design og GeoSilica, sem eru með aðsetur á Ásbrú, kynntu vörur sínar á Indlandi í vor. Vörurnar fengu góðar móttökur og var í framhaldinu unnið að samningum um markaðssetningu þar. Hjá Mýr Design er framleiddur fatnaður sem hannaður er af Helgu Björgu Steinþórsdóttur. Hjá GeoSilica er framleitt fæðubótarefni úr kísli sem hefur góð áhrif á bein, húð, hár og neglur.

Ferðamenn við Gunnuhver á Reykjanesi.

Metfjöldi ferðamanna
Ferðamönnum hélt áfram að fjölga á nýliðnu ári. Víkurfréttir tóku reglulega púlsinn á fólki í ferðaþjónustunni og var það mat allra að ferðamönnum hafi fjölgað og að þeir stoppi lengur við á Suðurnesjum en áður. Fimm stjörnu svíta, Diamond Suite, var opnuð á Hótel Keflavík á árinu og hefur verið vel sótt. Um milljón ferðamenn heimsóttu Bláa lónið á árinu og er lónið vinsælasti ferðamannastaður landsins. Hjá Bláa lóninu starfa um 500 manns og í lok árs stefndi í að tekjur ársins yrðu yfir tíu milljarðar. Á árinu var opnað kaffihús í gamla vitanum á Garðskaga. Garðskaginn er gríðarlega vinsæll meðal ferðamanna og er talið að um 43 þúsund manns hafi heimsótt Garðskagavita í ágúst síðastliðnum, eða um 1.390 á dag, að meðaltali.

 

Þrýstihópur um tvöföldun Reykjanesbrautar
Hópurinn Stopp hingað og ekki lengra var stofnaður á Facebook 8. júlí síðastliðinn eftir banaslys á gatnamótum Hafnavegar og Reykjanesbrautar. Slysið var á þeim kafla vegarins sem enn á eftir að tvöfalda. Hópurinn vann að því með ýmsum hætti að þrýsta á stjórnvöld að ljúka við tvöföldun á Reykjanesbraut og setja sem fyrst upp hringtorg við gatnamót brautarinnar og Hafnarvegar, Þjóðbrautar og Aðalgötu. Nú rétt fyrir jól var samþykkt á Alþingi að á næsta ári yrði 200 milljónum varið í gerð tveggja hringtorga á Reykjanesbraut fyrir ofan Reykjanesbæ.

Kálver í staðinn fyrir álver
Gerðardómur komst að þeirri niðurstöðu í byrjun desember að HS orka væri ekki bundin af orkusölusamningi til álvers Norðuráls í Helguvík. Því eru litlar líkur á að álver taki nokkurn tíma til starfa í byggingum fyrirtækisins í Helguvík. Leikarinn Stefán Karl Stefánsson hefur áhuga á að stofna grænmetisframleiðslu í byggingunum eða annars staðar á Suðurnesjum og sér fyrir sér að þar verði einnig alþjóðlegur grænmetismarkaður, enda stutt í alþjóðaflugvöllinn.

Kennarar á Suðurnesjum héldu fjölmennan baráttufund í Andrew´s Theatre í nóvember síðastliðnum.

Uppsagnir kennara í kjarabaráttu
Kennarar um allt land háðu kjarabaráttu á árinu og felldu kjarasamninga tvisvar sinnum. Eftir að Kjaradómur lagði til hækkun launa æðstu embættismanna var kennurum nóg boðið og í kjölfarið sendu margir þeirra frá sér ályktanir um málið og í kjölfarið sagði nokkur fjöldi kennara í Reykjanesbæ upp störfum. Í Njarðvíkurskóla sögðu 20 af 28 kennurum upp. Ný kjarasamningur kennara var svo samþykktur þann 12. desember og í kjölfarið drógu nokkrir kennarar í Reykjanesbæ uppsagnir sínar til baka.