Fremur hæg norðlæg átt

Veðurhorfur til klukkan 18:00 á morgun
Norðlæg átt, 13-18 m/s við norðausturströndina í dag, annars mun hægari. Él norðan og austanlands, en léttir til á Suður- og Vesturlandi. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum. Hægviðri og léttskýjað í nótt, en dálítil él við ströndina. Vaxandi austanátt á morgun, 13-18 m/s og snjókoma sunnantil undir kvöld.