Frelsinu fylgir ábyrgð
- segir formaður bæjarráðs Grindavíkur um nethegðun og tjáningafrelsi.
Kristín María Birgisdóttir, formaður bæjarráðs í Grindavík, flutti setningarávarp hátíðarhaldanna á þjóðhátíðardaginn í Grindavík. Þar fjallaði hún um nethegðun og tjáningafrelsi og þá ábyrgð sem fylgir. Ræða hennar hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum, sérstaklega í ljósi umræðu um eineltismál í bæjarfélaginu.
Í ávarpi sínu sagði Kristín að mikilvægt sé að Grindvíkingar séu sáttir í góðu samfélagi. „Grindavík er gott samfélag og hér er yndislegt að búa. Hér eru auðlindirnar miklar en sú mikilvægasta er þó fólkið sem hérna býr. Þess vegna skiptir máli að við séum ánægð með það sem í kringum okkur er. Að við séum sátt. Það er samvinna okkar allra að vera uppbyggileg og benda á það sem betur má fara. Suma hluti er auðvelt að laga. Eins og að mála götur eða leggja gangstéttir. Aðra hluti tekur lengri tíma að vinna með, eins og starfsanda, viðhorf og hegðun. Það eru þessir hlutir sem vega þyngst.“
Varðandi netumræðu og tjáningafrelsi hafði Kristín þetta að segja:
„Í dag er umhverfið þannig að öll getum við flutt fréttir af því sem á daga okkar drífur. Sagt frá því sem við erum glöð með og jafnframt tjáð okkur um það sem við erum óánægð með. Tjáningarfrelsið er jú okkar lýðræðisréttur. Það getum við nú nýtt í gegnum samfélagsmiðla eins og Facebook og bloggsíður auk þess sem við getum tjáð okkur við allar þær fréttir sem birtast á sumum netmiðlum. Frelsinu fylgir þó líka ábyrgð. Ég geri þetta að umtalsefni mínu hér því umhverfið okkar er að breytast mjög hratt. Börn og unglingar eru komin með tæki sem þau oft ráða illa við. Bæði unga fólkið og þeir sem fullorðnir eru eiga oft auðveldara með að tjá sig og taka út reiði sína bak við tölvur eða snjallsíma. Við þurfum því að hafa varann á og muna að við gegnum öll hlutverki sem fyrirmyndir þeirra sem yngri eru. Munum gullnu regluna, allt sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra, sem er ekki bara skrautfjöður í þjóðhátíðaræður eða eitthvað sem farið er yfir í trúarbragðakennslu. Þetta þarf að muna í hita leiksins því það er þá sem það skiptir máli. Við eigum að gagnrýna og við megum benda á það sem betur má fara. Notum uppbyggilega gagnrýni - rýnum til gagns.“
Kristín bætti við að netumræðan og það umburðarleysi sem þrífst á vefnum sé að leiða okkur í ógöngur sem mikilvægt sé að reyna að sporna gegn. „Til að stórar samfélagslegar breytingar geti átt sér stað þurfum við fyrst að horfa inn á við og spyrja okkur hvort það sé mögulega eitthvað sem við getum breytt til hins betra hjá okkur sjálfum,“ sagði formaður bæjarráðs að lokum.
Ræðuna í heild sinni má sjá hér á heimasíðu Grindavíkur.