Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Frekari skemmdir á Suðurstrandavegi vegna jarðhræringanna
Myndirnar voru teknar í gær áður en vegur var þrengdur og merkingar auknar.
Þriðjudagur 16. mars 2021 kl. 16:52

Frekari skemmdir á Suðurstrandavegi vegna jarðhræringanna

Frekari skemmdir urðu á Suðurstrandarvegi í gær nálægt Festarfjalli. Sprungur hafa myndast við axlir og í fyllingu þannig að vegrið hefur ekki allsstaðar fullan stuðning. Svæðið er merkt, akreinar eru þrengdar, þungatakmarkanir hafa verið settar á og hámarkshraði lækkaður. Unnið er að lausnum varðandi lagfæringar á þessum skemmdum. Frá þessu er greint á vef Vegagerðarinnar þar sem jafnframt eru birtar myndir af skemmdunum.

Vegagerðin hefur eftir frumskoðun og uppsetningu gátskjalda í gær skoðað ástand vegarins í morgun. Í ljós kom að það er töluvert sig á fyllingu utan á öxlum vegarins, vegriðið hefur ekki lengur fullan stuðning á nokkrum köflum. Vegurinn hefur einnig sprungið þvert á nokkrum stöðum. Það er ekki að sjá að það sé komið í sig í veginn sjálfan en svæðið sem er mest sprungið er þarf að skoðast betur og þar verður þrengt að umferðinni svo ekki reyni á þá kafla.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Einnig hefur veirð tekin ákvörðun um að setja þungatakmarkanir á veginn og miða við 7 tonna öxulþunga. Vegurinn verður þrengdur þannig að umferðin færist frá ytri brún, færslan verður stærri en sett var upp í gær. Hámarkshraði verður áfram tekin niður í 50 km/klst. Vegfarendur eru beðnir um að fara varlega á veginum og svæðinu öllu. Ljóst er að breytignar geta átt sér stað enda skjálftavirknin áframhaldandi.

Unnið er að frekari úrlausn.