Franska flugsveitin komin
Frönsk flugsveit með fjórum Mirage 2000 orrustuþotum er komin til Keflavíkur. Vélarnar lentu hér á tólfta tímanum. Þeim er ætlað að hafa eftirlit með íslensku lofthelginni. Fylgdarlið sveitarinnar telur um 120 manns.
Vélarnar verða hér fram í sex vikur samkvæmt samkomulagi ríkisstjórnarinnar og NATO. Samkvæmt því skiptast Frakkar, Bandaríkjamenn, Danir, Pólverjar og Spánverjar á um að hafa eftirlit með lofthelginni næstu tvö árin. Þetta er í fyrsta sinn sem aðrir en Bandaríkjamenn hafa eftirlit með íslenskri lofthelgi.