Framtíðarsjóður í niðurgreiðslu langtímalána?
– Málið tekið fyrir á íbúafundi í Garði á morgun
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Garðs hefur boðað til íbúafundar í Gerðaskóla á morgun, þriðjudaginn 8. apríl kl. 20:00.
Haraldur Líndal Haraldsson hagfræðingur mun kynna úttekt á rekstri sveitarfélagsins, sem hann vann fyrir bæjarstjórn. Á fundinum verður einnig leitað álits íbúa á því hvort ráðstafa eigi hluta af Framtíðarsjóði sveitarfélagsins til niðurgreiðslu á langtímalánum bæjarsjóðs.
Íbúar Garðs eru hvattir til að mæta á fundinn, kynna sér rekstur sveitarfélagsins og taka þátt í umræðum, segir í tilkynningu frá Magnúsi Stefánssyni, bæjarstjóra í Garði.