Bygg
Bygg

Fréttir

Framtíðarsjóður Garðs á góðum vöxtum í heimabyggð
Fimmtudagur 9. október 2008 kl. 22:35

Framtíðarsjóður Garðs á góðum vöxtum í heimabyggð

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Farið var yfir ávöxtun Framtóðarsjóðs Sveitarfélagsins Garðs á bæjarráðsfundi þann 8. okt. sl. og skoðaðir möguleikar í þeim efnum eins og staðan er í dag.

Tilboð frá Kaupþingi í ávöxtun sjóðsins var lagt fram. Bæjarráð taldi að í ljósi aðstæðna sé ekki rétt að gera breytingar nú á ávöxtun sjóðsins. Ákvörðunin virðist hafa verið rétt miðað við stöðu Kaupþings í dag.

Bæjarráð vill fullvissa Garðbúa um að Framtíðarsjóður bæjarins sem varð til eftir sölu hluts Garðs í Hitaveitu Suðurnesja hf. er öruggur. Sjóðurinn er á innlánsreikningi í Sparisjóðnum í Garði og hefur ávaxtast þar vel.