HSS
HSS

Fréttir

  • Framtíð Paddy's gæti ráðist í dag
    Einn fjölmargra viðburða á Paddy's.
  • Framtíð Paddy's gæti ráðist í dag
Mánudagur 12. janúar 2015 kl. 09:50

Framtíð Paddy's gæti ráðist í dag

Fundur hjá rekstraraðila og bæjarritara Reykjanesbæjar.

Framtíð skemmtistaðarins Paddy's við Hafnargötu 38 í Reykjanesbæ gæti ráðist í dag. Að sögn Björgvins Ívars Baldurssonar, annars tveggja sem hafa séð um rekstur staðarins fram að áramótum, mun hann hitta Hjört Zakaríasson, bæjarritara Reykjanesbæjar, á fundi í dag þar sem málin verða rædd. 

Eins og Víkurfréttir hafa áður fjallað um er allt útlit er fyrir að skemmtistaðnum Paddy's við Hafnargötu 38 verði lokað til frambúðar. Jafnvel gæti fari svo að húsið verði fært eða jafnað við jörðu. Húsið er í eigu Reykjnesbæjar en bæjaryfirvöld eiga eftir að ákveða hvað gera skuli við húsnæðið sem hefur verið öldurhús síðustu rúma tvo áratugina.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Guðbrandur Einarsson bæjarfulltrúi og oddviti Beinnar leiðar hefur lýst því yfir að hann vilji persónulega sjá húsið fara. Björgvin Ívar hefur ásamt Ragnari Aroni Ragnarssyni lýst yfir áhuga á því að koma með fjármagn inn í reksturinn og byggja staðinn frekar upp.

Víkurfréttir munu að sjálfsögðu fylgjast vel með framvindu málsins.