„Framtíð í atvinnumálum á Reykjanesi“
-Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi halda hádegisfundi í öllum sveitarfélögum á Reykjanesi
	Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi (SAR) eru 5 ára um þessar mundir og efna til fundarherferðar undir heitinu „Framtíð í atvinnumálum á Reykjanesi“ í haust og fram eftir næsta ári. Félagið var stofnað í maí 2010. Stofnfélagar voru 31 en í dag eru 220 fyrirtæki og stofnanir aðilar að SAR.
	
	Á fundunum verður SAR kynnt stuttlega og skýrt frá verkefnum sem eru fyrirhuguð á Reykjanesi næstu 15–20 árin.  „Við ætlum að veita upplýsingar og fá upplýsingar á hverjum stað fyrir sig.  Þessi hringur verður svo endurtekinn en það eru um það bil 6 vikur á milli funda,“ segir Guðmundur Pétursson, formaður félagsins.
	Fyrirkomulag fundanna verður þannig að mæting er 11:45 þar sem fundargestum stendur til boða léttur hádegisverður/súpa en fundi verður svo slitið á slaginu kl. 13.
	
	„Við viljum hvetja alla til að mæta sem vilja ræða atvinnumál og hafa áhrif á mótun framtíðar í atvinnumálum á Reykjanesi. Ætlunin er að vera með 10 mínútna kynningar á fyrirtækjum sem vilja koma með okkur í þessa vegferð á hverjum stað. SAR verður fyrst með 10 mínútur eða svo til að kynna verkefni en svo verða umræður eftir fyrirtækjakynningar.“
	
	Dagskrá funda:
	1. Fundur Grindavík 8. október 2015.
	2. Fundur Sandgerði 19. nóvember 2015.
	3. Fundur Garði 14. janúar 2016.
	4. Fundur Reykjanesbæ 25. febrúar 2016.
	5. Fundur Vogum 7. apríl 2016.


 
	
				


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				