Framleiðsla hefst í maí á næsta ári
- hjá kísilveri United Silicon í Helguvík
Kísilver United Silicon rís hratt þessa dagana í Helguvík. Fyrsti ofn kísilversins hefur verið settur saman og nú er unnið að því að setja saman stálgrind verksmiðjuhússins. Fyrirtækið er að ráða til sín starfsmenn og munu nokkrir hefja störf á næstu vikum en fleiri um áramót.
Magnús Garðarsson, einn af eigendum United Silicon og starfandi stjórnarmaður, segir í samtali við Morgunblaðið að þeir sem ráðnir hafi verið hingað til séu flestir mest iðnaðarmenn. Í janúar hefst þjálfun starfsmanna svo að þeir geti tekið til starfa þegar starfræksla kísilversins hefst í maí á næsta ári.
Hægt er að framleiða tæp 22 þúsund tonn af kísli á ári með einum ofni. Í framtíðaráætlunum fyrirtækisins er gert ráð fyrir stækkun verksmiðjunnar þannig að þar verði brætt kvarts í fjórum ofnum. Magnús segir, í frétt Morgunblaðsins, næsta áfanga fara eftir því hvenær hægt verði að fá raforku fyrir annan ofninn. Það eykur hlut hágæðakísils í framleiðslunni.
Magnús segir að til þess að geta framleitt sem mest af hágæðakísli fyrir verðmæta markaði þurfi að lágmarki tveggja ofna verksmiðju. Mikill gæðamunur sé á hráefninu og þegar einn ofn sé í rekstri þurfi allt að fara í hann. Hægt sé að flokka hráefni mun betur þegar tveir ofnar séu í verksmiðju og láta besta hráefnið í annan ofninn.
Um 85% afurða verksmiðjunnar hafa verið seld til tveggja erlendra viðskiptavina með samningum til langs tíma.