Framleiðir allt að 1400 matarskammta á dag

Ákveðið var 1 mars s.l. að sameina þessi tvö fyrirtæki undir einn hatt, vegna mikilla verkefna hjá báðum aðilum. Mikil aukning hafði orðið í svokölluðum skólamáltíðum hjá Atlanta flugeldshúsi og aukning hafði orðið hjá Matarlyst, þanning að menn töldu mikla hagræðinu
í því að sameina krafta sína og nýta þekkingu beggja fyrirtækjana sem best. Stofnfundinn sóttu hluthafar og gestir alls um 20 manns.
Ný stjórn var kjörin og er hún skipuð þeim Páli Ketilssyni, formanni, Fanný S. Axelsdóttur, varaformanni, meðstjórnendur eru Rúnar Smárason, Þóra Guðmundsdóttir, Magnús Þórisson og Arngrímur
Jóhannsson. Framkvæmdastjóri er Axel Jónsson.
Mikil aukning hefur orðið hjá fyrirtækinu uppá síðkastið. Nú eru 5
grunnskólar og 2 leikskólar í viðskiptum auk margra annarra verkefna.
Að sögn Axels Jónssonar, framkvæmdastjóra eru miklir möguleikar á sviði skólamáltíða og eru nokkrir samningar í burðaliðnum hjá fyrirtækinu.
Aðalega hafa þessi viðskipti verið á stór-Reykjavíkur svæðinu auk
Grindavíkurbæjar sem hefur gert 5 ára samning við Matarlyst/Atlanta um skólamáltíðir fyrir Grunnskóla Grindavíkur.
Að sögn Axels gera áætlanir ráð fyrir að framleiðsla verði komin í 4000 máltíðir á dag í lok árs 2004.
Það er ljóst að möguleikar okkar í skólamáltíðum eru miklir en einnig á öðrum sviðum, sagði Axel Jónsson sem oft hefur verið nefndur "veitingamaður Suðurnesja" enda sennilega reynslumesti maðurinn á því sviði á svæðinu.