Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Framkvæmt fyrir 400 milljónir í Grindavík
Þriðjudagur 13. desember 2011 kl. 10:21

Framkvæmt fyrir 400 milljónir í Grindavík

Samkvæmt fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar verður framkvæmt fyrir um 400 milljónir árin 2012 og 2013 en þetta kemur fram í Járngerði, fréttabréfi Grindavíkurbæjar. Það sem helst liggur fyrir er stækkun íþróttahúss, nýir klefar og uppbygging á sameiginlegri aðstöðu UMFG. Húsnæðið mun nýtast fyrir viðburði og skemmtanir í bænum og leysa hlutverk sem Festi hafði áður. Annað sem er á teikniborðinu er:

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

• Endurhönnun og stækkun bílastæða við heilsuleikskólann Laut

• Salernisaðstaða við Hópið.

• Niðurrif gamla hreyfisalsins við grunnskólann og bygging nýs sameiginlegs bókasafns og breytingar á húsnæði skólans fyrir flutning tónlistarskóla.

• 2012 verður mikið stígaár og átak í merkingum fyrir ferðamenn:
- Skýrsla um stíga og merkingar haustið 2011 liggur fyrir.
- Ýmsir stígar innanbæjar
- Stígur austur í Þórkötlustaðahverfi
- Stígur í Selskóg sem tengist inn á stíga HS Orku og Bláa lónsins
- Stígar og merkingar fyrir ferðamenn frá tjaldstæði um hafnarsvæðið og út á Hópsnes.

• Breikkun innri rennu hafnarinnar

• Yfirlögn á malarveginn að smábátabryggju

• Breytingar á sambýlinu við Túngötu, m.a. gerð sólpallar og betri útiaðstöðu

• Víðihlíð - hurðir.