Framkvæmdir við stjórnsýsluhús frestast

Framkvæmdir hafa frestast við nýtt stjórnsýsluhús Reykjanesbæjar, þar sem jafnframt verða nýjar höfuðstöðvar Hitaveitu Suðurnesja og skrifstofur Geysir Green Energy.
Til stóð að hefja framkvæmdir við bygginguna í vor sem leið.
Að því er fram kemur í Fréttaveitunni, fréttabréfi HS, er frestun framkvæmdanna fyrst og fremst tilkomin vegna stöðunnar á fjármálamörkuðum. Ekki hefur tekist að útvega nægjanlegt fjármagn til framkvæmdanna.
Áfram verður unnið að að þeim áformum að í byggingunni verði skrifstofur Reykjanebæjar ásamt bókasafni, útibúi Sparisjóðsins og skrifstofum HS og GGE. Teikningar og útboðsgögn fyrir uppsteypt hús ásamt fullnaðarfrágangi að utan eru nánast tilbúin.
Í Fréttaveitunni segir að Fasteign muni byggja (fjármagna) skrifstofur Reykjanesbæjar, bókasafn og húsnæði Sparisjóðsins. HS fjármagnar sinn hluta byggingarinnar þar sem skrifstofur GEE verða einnig. Ráðgert er að hafa útboðið sameiginlegt. Unnið er að nýrri tímaáætlun verksins, að því er fram kemur í Fréttaveitunni.
Sem kunnugt er hefur starfsfólk bæjarskriftofunnar búið við afar þröngan húsakost síðustu misseri eftir að félags- og fræðslumálaskrifstofurnar voru færðar frá Hafnargötu í húsakynnin við Tjarnargötu vegna mikillar hækkunar á húsaleigu.