Framkvæmdir við stærra hjúkrunarheimili við Nesvelli hafnar
Framkvæmdir vegna stækkunar hjúkrunarheimilis Hrafnistu í Reykjanesbæ eru hafnar. Jarðvinna stendur nú yfir og vinnur Ellert Skúlason ehf. að verkefninu. Skóflustunga var tekin í maí í fyrra og skrifað undir samning um uppbygginguna, sem þá átti að vera 60 rýma hjúkrunarheimili. Í desember náðust svo samningar milli heilbrigðisráðuneytisins og Reykjanesbæjar um viðauka við samninginn sem fjölgaði hjúkrunarrýmum úr 60 í 80. Þar með hækkar nýbyggingin úr þremur hæðum í fjórar. Kostnaður við framkvæmdina skiptist þannig að ríkið greiðir 85% og Reykjanesbær 15%.
Nýtt hjúkrunarheimili við Nesvelli leysir Hlévang, eldra heimili í Keflavík, af hólmi. Þá tryggir staðsetning á Nesvöllum góða samnýtingu og hagræðingu. Hjúkrunarheimilið á Nesvöllum opnaði 14. mars 2014 og leysti þá af hólmi Garðvang í Garði.
Nýtt hjúkrunarheimili með 80 nýjum rýmum verður tekið í notkun fyrir árslok 2025. Nýja hjúkrunarheimilið verður tengt við núverandi heimili með tengibyggingu. Núverandi hjúkrunarheimili er með 60 rýmum á þremur hæðum. Þegar nýja heimilið opnar verður Hlévangur aflagður. Þar eru 30 rými sem flytjast á Nesvelli. Þá standa eftir 50 rými en þegar samningar um uppbyggingu nýja heimilisins voru undirritaðir í maí 2022 voru 40 manns á biðlista eftir hjúkrunarrými.