Framkvæmdir við stækkun Bláa lónsins ganga vel
 Framkvæmdir við endurhönnun og stækkun Bláa lónins ganga vel. Nú nýverið opnuðu búningsklefar á neðri hæð en gert er ráð fyrir að í lok maí verði öll búningsálman tilbúin. Þá verður ný skrifstofuálma tekin í notkun í lok maí. Framkvæmdir við nýjan veitingasal ganga einnig vel en byrjað er að glerja salinn. Stefnt er að því að nýji veitingasalurinn opni um mitt sumar.

Myndband: Tölvugerð mynd af stækkun Bláa lónsins (.wmv)
.