Framkvæmdir á Hafnargötu ganga vel
Starfsmenn Nesprýðis vinna hörðum höndum þessa dagana við að klára næsta áfanga Hafnargötunnar fyrir verslunarmannahelgi.
Þar er átt við kaflann fram að 10-11, en síðasta spölinn á að klára fyrir Ljósanótt.
Hafnargatan verður malbikuð að hluta, en ekki öll hellulögð eins og hún er neðar í götunni, og er ráðgert að hafa enn eitt hringtorgið á gatnamótunum fyrir framan Langbest.
VF-mynd/Þorgils Jónsson