Bygg
Bygg

Fréttir

Framkvæmdir á Grindavíkurvegi
Þriðjudagur 24. október 2017 kl. 14:15

Framkvæmdir á Grindavíkurvegi

Framkvæmdir standa nú yfir á Grindavíkurvegi og eru vinnuvélar að störfum við vegkanta vegarins þar hafa ökumenn þurft að sýna tillit við þessar framkvæmdir með því að hleypa bílum úr gagnstæðri átt fram hjá sér. Verið er að laga umhverfi vegarins eða svokallað öryggissvæði að sögn G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, við fyrirspurn Víkurfrétta.

Gerð var öryggisúttekt á veginum og koma þessar framkvæmdir til eftir hana. „Það er verið að gera það öruggara ef keyrt er út af vegi. Efni er keyrt í fláa til að gera þá flatari og stór grjót fjarlægð. Hugsanlega verður svo sett vegrið á einhvern kafla þar sem ekki er hægt að laga öryggissvæði,“ segir G. Pétur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn