Bygg
Bygg

Fréttir

Framkvæmdaþing í Reykjanesbæ í kvöld
Fimmtudagur 10. mars 2005 kl. 11:12

Framkvæmdaþing í Reykjanesbæ í kvöld

Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, boðar til framkvæmdaþings á Ránni í Reykjanesbæ í kvöld. Á þinginu verða kynntar helstu verkframkvæmdir sem fyrirhugaðar eru á árinu 2005 í landi Reykjanesbæjar og á Keflavíkurflugvelli.

Kynntar verða framkvæmdir á vegum Reykjanesbæjar, Reykjaneshafnar og Fasteignar hf. auk þess sem fjallað verður um framkvæmdir vegna alþjóðaflugvallar á Keflavíkurflugvelli, framkvæmdir hjá Varnarliði, Hitaveitu Suðurnesja og byggingarframkvæmdir í Tjarnahverfi og víðar. Þá hefur helstu verktökum á svæðinu verði boðið að kynna eigin framkvæmdir. Þingið verður haldið á veitingahúsinu Ránni við Hafnargötu kl. 16 - 19 og er öllum opið.

Bílakjarninn
Bílakjarninn