Bygg
Bygg

Fréttir

Mánudagur 20. nóvember 2000 kl. 03:58

Framkvæmdastjóraskipti hjá Fiskmarkaði Suðurnesja

Stjórn Fiskmarkaðs Suðurnesja hefur ráðið Ragnar H. Kristjánsson í starf framkvæmdastjóra félagsins og hefur jafnframt leyst Ólaf Þór Jóhannsson undan starfsskyldum sem framkvæmdastjóri. Ólafur mun að eigin ósk framveigis einbeita sér að erlendum verkefnum á vegum félagsins og annarra. Þetta kemur fram í frétt frá FMS.Ragnar er 41 árs og hefur undanfarin ár verið framkvæmdastjóri Fiskmarkaðarins hf. í Hafnarfirði sem er eitt af dótturfélögum Fiskmarkaðs Suðurnesja. Þar áður átti hann og rak Faxalón ehf. sem var þjónustufyrirtæki fyrir fiskmarkaði á höfuðborgarsvæðinu. Ragnar er fiskmatsmaður að mennt. Hann er kvæntur Þórunni Ísfeld Jónsdóttur og eiga þau þrjú börn. Ólafur Þór Jóhannsson hefur verið framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Suðurnesja frá stofnun félagsins 1987. Hann var einnig framkvæmdasjóri Reiknistofu fiskmarkaða hf. þar til það félag var sameinað Íslandsmarkaði á þessu ári. Í tilkynningu frá stjórn Fiskmarkaðs Suðurnesja segir að stjórnin sé mjög ánægð með að Ólafur skuli vilja sinna mikilvægum verkefnum fyrir félagið og aðra fjárfesta sem felist í því að nýta þá þekkingu og reynslu sem skapist hafi hér á landi um uppbyggingu og rekstur fiskmarkaða.
Bílakjarninn
Bílakjarninn