Bygg
Bygg

Fréttir

Framfærslustyrkur til 86 einstaklinga í desember
Mánudagur 14. janúar 2019 kl. 09:15

Framfærslustyrkur til 86 einstaklinga í desember

Áttatíu og sex einstaklingar fengu greiddan framfærslustyrk frá Reykjanesbæ í desember 2018. Alls var greitt kr. 9.853.809 í styrki. Í sama mánuði 2017 fékk sami fjöldi einstaklinga greiddan framfærslustyrk, alls var þá greitt kr. 9.808.849,-. Íbúafjölgun í sveitarfélaginu frá desember 2017 til desember 2018 var 6,4%.
 
Þá voru greiddar tæpar 1,9 milljónir króna í sérstakan húsnæðisstuðning til 149 einstaklinga/fjölskyldna. Á sama tíma 2017 fengu 132 einstaklingar/fjölskyldur greiddan sérstakan húsnæðisstuðning.
Bílakjarninn
Bílakjarninn