Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins samþykktur
Mánudagur 11. febrúar 2013 kl. 09:20

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins samþykktur

Á fjölmennu kjördæmisþingi sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi sem fram fór á Hótel Örk í Hveragerði laugardaginn 9. febrúar var framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 2013 samþykktur.

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fór fram laugardaginn 26. janúar sl. og greiddu 3988 atkvæði í prófkjörinu.

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 2013:

1. sæti Ragnheiður Elín Árnadóttir, alþingismaður, Reykjanesbæ
2. sæti Unnur Brá Konnráðsdóttir, alþingismaður, Hvolsvelli
3. sæti Ásmundur Friðriksson, fv. bæjarstjóri, Garði a
4. sæti Vilhjálmur Árnason, lögreglumaður Grindavík
5. sæti Geir Jón Þórisson, fv. yfirlögregluþjónn, Vestmannaeyjum
6. sæti Oddgeir Ágúst Ottesen, hagfræðingur, Hveragerði
7. sæti Sandra Dís Hafþórsdóttir, fjármálastjóri, Eyrarbakka
8. sæti Trausti Hjaltason. sérfræðingur hjá LV, Vestmannaeyjum
9. sæti Sigurbjartur Pálsson, bóndi, Þykkvabæ
10. sæti Þorsteinn M Kristinsson, lögreglumaður, Kirkjubæjarklaustri
11. sæti Björg Hafsteinsdóttir, sjúkraþjálfari, Reykjanesbæ
12. sæti Ármann Einarsson, útgerðarstjóri, Þorlákshöfn
13. sæti Lovísa Rósa Bjarnadóttir, sjálfstæður atvinnurekandi, Höfn í Hornafirði
14. sæti Margrét Rúnólfsdóttir, hótelstjóri, Flúðum
15. sæti Markús Vernharðsson, nemi, Selfossi
16. sæti Sigurhanna Friðþórsdóttir, grunnskólakennari, Vestmannaeyjum
17. sæti Jóna Sigurbjartsdóttir, hárgreiðslumeistari, Selfossi
18. sæti Arnar Ragnarsson, skipstjóri, Höfn í Hornafirði
19. sæti Elínborg Ólafsdóttir, varabæjarfulltrúi, Hveragerði
20. sæti Árni Johnsen, alþingismaður, Vestmannaeyjum

(fréttatilkynning)

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024