Bygg
Bygg

Fréttir

Fræðsluráðs Reykjanesbæjar veitir hvatningarverðlaun
Fimmtudagur 29. maí 2008 kl. 23:35

Fræðsluráðs Reykjanesbæjar veitir hvatningarverðlaun

Fræðsluráð Reykjanesbæjar efnir nú í fyrsta sinn til hvatningarverðlauna fyrir einstaka kennara, kennarahópa og starfsmenn í leikskólum, grunnskólum og tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Verðlaunin eru veitt fyrir starf eða verkefni sem þykja skara fram úr og vera öðrum til eftirbreytni.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Markmið hvatningarverðlaunanna er að vekja athygli á gróskumiklu starfi skólanna og stuðla að nýbreytni og þróunarstarfi. Verðlaunin eru viðurkenning fyrir vel unnin störf í þágu nemenda og foreldra og staðfesting á því að skólinn sé fyrirmynd annarra á því sviði sem um
ræðir.

Tilnefna má þróunar- og nýbreytniverkefni um hvaðeina í skólastarfi sem unnið hefur verið að á yfirstandandi skólaári s.s. vinnu með nemendum, stefnumótun og skipulag, verkefni eins kennara eða samvinnuverkefni, verkefni í almennri kennslu eða sérgreinum, framlag annars starfsfólks skólans, forvarnarstarf eða félagsstarf.

Alls bárust 24 tilnefningar að þessu sinni um 22 verkefni/kennara/starsfmenn og verða hvatningarverðlaunin afhent við formlega athöfn í Bíósal Duushúsa miðvikudaginn 11. júní n.k. sem er afmælisdagur Reykjanesbæjar.

Hvatningaverðlaun fræðsluráðs Reykjanesbæjar
Tilnefningar

Ester Níelsdóttir Heiðarskóli
María Óladóttir Heiðarskóli
Tónlistarkennsla Leiksk. Holts Holt
Forskólatónleikar Tónlistarskóli
Teach í leikskóla Heiðarsel
Harpa Brynjarsdóttir Holt
Anna Soffía Wahlström Holt
Tónlist í leikskóla Holt
Anna Sofía Wahlström Holt
Ég og þú, þú og ég. Akurskóli
Starfsfólk Sólvalla (deildar) Tjarnarsel
María Arnardóttir og Anna Pála Árnad. Heiðarskóli
Heilsuleikskóli Heiðarsel
Guðríður Vilbertsdóttir Njarðvíkurskóli
Guðrún Sigurðardóttir Gimli
Söngleikir í grunnskólum, Freydís Kneif, Íris og Gunnheiður.
Myllubakkaskóli
Umhverfisteymi/Grænfáni Njarðvíkurskóli
Innleiðing PBS Njarðvíkurskóli
Samkennsla í 3. og 4. bekk, Helena og Guðný Njarðvíkurskóli
Verkleg stærðfræði/Jákvæð stærðfræði í leik. Njarðvíkurskóli
Samþætting tónlistarkennslu og grunnskóla Tónlistarskóli