Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

  • Fræðslufundur um fornleifar í Höfnum
  • Fræðslufundur um fornleifar í Höfnum
Laugardagur 28. febrúar 2015 kl. 08:30

Fræðslufundur um fornleifar í Höfnum

– haldinn í Duushúsum nk. miðvikudag

Fræðslufundur um fornleifarannsónknir í Höfnum verður haldinn í bíósal Duushúsa, miðvikudaginn 4. mars kl. 17.30.

Gestur fundarins er Bjarni F. Einarsson fornleifafræðingur sem mun segja frá rannsóknum sínum í Höfnum sem hófust árið 2009. Bjarni mun fara yfir gang rannsóknanna og kynna þær niðurstöður sem liggja fyrir.

Nokkuð ítarlegar rannsóknir hafa farið fram á aldri rústanna og einnig hefur verið skoðað hvers eðlis búsetan var. Áhugaverðar tilgátur hafa komið fram til dæmis að ekki sé um venjulegt bændabýli að ræða heldur sé hér að finna könnunarbúðir sem menn nýttu við að kanna landshagi og til að nýta t.d. hvaltennur og rostungatennur sem voru afar verðmætar á þessum tímum.
 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024