Frábær ferðahelgi framundan
Veðurhorfur næsta sólarhring við Faxaflóa
Norðvestlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og léttskýjað. Hiti 13 til 20 stig. Vestlægari á morgun og þykknar upp.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Hæg breytileg átt eða hafgola, skýjað með köflum eða léttskýjað, en sums staðar líkur á þoku við ströndina. Hiti 8 til 20 stig, svalast í þokunni en hlýjast SV-lands.
Á sunnudag:
Hægviðri og léttskýjað norðan- og austanlands, en þykknar upp sunnan- og vestanlands og líkur á dálítilli súld þar síðdegis. Hlýtt í veðri.
Á mánudag (frídagur verslunarmanna):
Hæg suðlæg eða breytileg átt. Skýjað að mestu og úrkomulítið, en dálítil súld eða rigning með köflum vestanlands. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast NA- og A-til.