Frábær árangur nemenda í samræmdum prófum
- í 4. bekk í Reykjanesbæ
	Fyrstu niðurstöður samræmdra könnunarprófa í 4. og 7. bekk haustið 2012, eru nú komnar.  Árangur nemenda í stærðfræði í 4. bekk í Reykjanesbæ er nú með því allra besta sem gerist á landsvísu. Árangur í stærðfræði er raunar einnig góður í þeim nágrannasveitarfélögum sem eru á þjónustusvæði Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar. Sé reiknað meðaltal skóla í Garðinum, Sandgerði og Reykjanesbæ, í 4. bekk í stærðfræði, eru skólarnir yfir landsmeðaltali.
	
	Árangur í íslensku í 4. bekk er einnig góður, en nemendur í 4. bekk í Reykjanesbæ eru nú í fyrsta skipti yfir landsmeðaltali í íslensku.
	
	Árangur í stærðfræði í 7. bekk er góður en þar er árangur í Reykjanesbæ yfir landsmeðaltali. Skólarnir í bænum hafa sett sér það markmið að vera yfir eða í landsmeðaltali í öllum samræmdum greinum.  Lengra er í land með að það markmið náist í íslensku í 7. bekk  en verið er að vinna að því í öllum skólunum.
	
	Þetta er birt með fyrirvara um að endanlegar tölur frá Námsmatsstofnun liggja ekki fyrir, segir í tilkynningu frá Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				