Frábær árangur í vinnuvernd
Flotastöð Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli vann nýlega til verðlauna bandaríska flotamálaráðuneytisins fyrir frábæran árangur í vinnuvernd. Elsie Munsell, aðstoðarráðherra Bandaríkjaflota á sviði vinnuverndar og umhverfismála, afhenti yfirmönnum Varnarliðsins og Magnúsi Guðmundssyni, forstöðumanni vinnueftirlits Varnarliðsins, verðlaunin við hátíðlega athöfn á Keflavíkurflugvelli nú í morgun.Flotastöðin á Keflavíkurflugvelli er stærsta deild Varnarliðsins og annast alla þjónustustarfsemi þess á varnarsvæðinu, þ.á.m. rekstur flugvallarins, húsnæðis, veitu- og birgðastofnun svo eitthvað sé nefnt. Um 850 Íslendingar starfa hjá Varnarliðinu, flestir hjá flotastöðinni og er vinnueftirlitið rekið á vegum hennar.Íslensk vinnuverndarlög gilda á Keflavíkurflugvelli. Sú vinnuregla er viðhöfð að ávallt er farið eftir þeim lögum og reglugerðum, íslenskum eða bandarískum, sem ná lengra hverju sinni. Forstöðumaður og eftirlitsmenn vinnueftirlitsins eru íslenskir og annast þeir reglubundið eftirlit með öryggi og vinnuvernd í öllum mannvirkjum og á vinnustöðum á varnarsvæðinu um öryggis við íþrótta- og tómstundaiðkun, svo á sviði umferðaröryggis.Fræðsla er stór þáttur starfseminnar og fá allir starfsmenn Varnarliðsins, íslenskir og bandarískir, reglubundna þjálfun á því sviði. Vinnuslys eru fátíð á Keflavíkurflugvelli og forsvarsmenn segja það ekki síst vera að þakka árangursríkri starfsþjálfun og eftirliti.Náið samstarf er við Vinnueftirlit ríkisins og önnur íslensk yfirvöld um öryggi á vinnustöðum og vinnuvernd á Keflavíkurflugvelli. Magnús og starfsfólk hans hafa áður hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir störf sín.