FRÁ ÚVEGSMANNAFÉLAGI SUÐURNESJA
				
				Útvegsmannafélag SuðurnesjaHagsmunir Suðurnesja verði ekki skertir til að auka hlut smábátaÚtvegsmannafélag Suðurnesja styður frumvarp sjávarútvegsráðherra um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða. Félagið bendir á að ekki verði tekið meira af aflaheimildum aflamarksskipa til að auka enn við hlut smábáta eins og ítrekað hefur verið gert á undanförnum árum. Á árinu 1997 fiskuðu 70 aflamarksskip á Suðurnesjum um 380 þúsund tonn af bolfiski, skelfiski og uppsjávarfiski og 750 sjómenn höfðu atvinnu af því.Útvegsmannafélag Suðurnesja er alfarið á móti því að hagsmunir Suðurnesja verði skertir enn frekar til að auka hlut smábáta. Útvegsmannafélag Suðurnesja er alfarið á móti því að hagsmunir Suðurnesja verði skertir enn frekar til að auka hlut smábáta.Frá stjórn Útvegsmannafélags Suðurnesja.
				
	
				
					
						
					
					
						
					
				
				
				 								
			




 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				