Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Frá Keflavík í kjölfar kríunnar til Suðurskautslandsins
National Geographic Explorer leggst að bryggju í Keflavík. VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Þriðjudagur 24. ágúst 2021 kl. 15:29

Frá Keflavík í kjölfar kríunnar til Suðurskautslandsins

- Enginn makríll í ár og skipulag vegna skipaþjónustuklasa að verða klárt

„Það er meira um skemmtiferðaskip í ár en hingað til,“ segir Halldór Karl Hermannsson, hafnarstjóri Reykjaneshafnar, í samtali við Víkurfréttir. Í byrjun vikunnar lagðist skipið National Geographic Explorer að bryggju í Keflavík og aðeins eru nokkrir dagar síðan annað skip frá National Geographic hafði viðkomu í Keflavík á ferðalagi sínu hér við land. Í júlí mátti svo sjá enn stærra skip á ytri höfninni.

Reykjaneshöfn hefur verið í markaðsátaki til að vekja athygli á þeirri aðstöðu sem er í boði í höfnum Reykjaneshafnar þar sem bent er á nálægðina við Keflavíkurflugvöll og þá möguleika sem felast í því fyrir skipafélögin, hvort sem er í farþegaskiptum eða áhafnaskiptum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Við höfum verið að benda á þann möguleika og menn eru núna að átta sig á tengingunni við flugvöllinn, að þeir leggja eiginlega við hliðina á flugbrautinni.“

Hentugra og ódýrara

Skipin frá National Geographic höfðu ekki bókað komur sínar fyrir sumarið, heldur hafa heimsóknir þeirra verið tilfallandi. „Mönnum finnst hentugra og ódýrara að koma hingað heldur en að leggja að í Hafnarfirði eða Reykjavík,“ segir Halldór Karl.

National Geographic Explorer hafði legið á ytri höfninni í Keflavík í nokkra sólarhringa áður en skipið kom loks til hafnar í Keflavík á mánudagsmorgun. Gera þurfti minniháttar lagfæringar á jafnvægisuggum skipsins áður en það fer í úthafið og leggur upp í langferð. Þar er nefnilega ekkert smá ferðalag framundan hjá skipinu. Það heldur í kjölfar kríunnar frá Keflavík og næsti áfangastaður er Suðurskautslandið.

Úr þúsundum tonna í þrjá fiska

Það er mikil breyting á lífinu við Keflavíkurhöfn þetta sumarið og haustið. Síðasta áratuginn hafa makrílbátar verið áberandi og makrílnum jafnvel mokað upp innan hafnarinnar. Ævintýrið hófst 2011 en frá árinu 2016 hafa veiðar á makríl dregist mikið saman. Það ár var 5.500 tonnum af makríl landað í Keflavík, tonnin voru 1.300 árið 2019 en aðeins 400 kíló í fyrra. Í ár hafa komið þrír makrílar á hafnarvogina í Keflavík, enda enginn bátur útbúinn til veiða. Veiðimenn hafa þó sést á bryggjunni í Keflavík með stangir á lofti og fengið eitthvað af makríl.

„Við höfum mikið af erlendum íbúum hér í Reykjanesbæ og það er þekkt í menningu þeirra að fara niður á bryggju og veiða sér til matar, þó svo við Íslendingar kunnum þetta ekki. Það er gaman að sjá fólk koma hingað niður á bryggju og taka út stóla og nesti og gera úr þessu skemmtilega samveru við veiðiskapinn,“ segir hafnarstjórinn.

Flestir eru veiðimennirnir á aðal hafnargarðinum við veiðar. Þegar þurfti að loka honum á mánudag vegna skemmtiferðaskipsins þá færðu veiðimennirnir sig yfir á aðrar bryggjur hafnarinnar en þar er reyndar ekki eins góð veiði. Ætið virðist meira við stærstu bryggjuna.

Rísandi sól í Helguvík

Skipakomum olíuskipa til Helguvíkurhafnar snarfækkaði í fyrra frá árinu áður. Aðeins komu þrjú olíuskip þangað á síðasta ári miðað við ellefu skip árið áður. „Við vitum að það er aðeins farið að ganga á birgðir þannig að olíuskipin eru farin að láta sjá sig aftur. Heildar skipakomur til Helguvíkurhafnar í fyrra voru 22 á móti 33 árið 2019. Við stefnum í að nálgast 30 skipakomur þangað í ár, þannig að það er aukning í öðrum skipum en olíuskipum.“

Aukning hefur verið í innflutningi á sementi um Helguvíkurhöfn en nú eru að koma þangað stærri skip með sementsfarma en áður með allt að tvöfalt magn í hverri ferð miðað við árin á undan.

„Við fundum lægð á síðasta ári í skipakomum til Helguvíkur en núna er þar rísandi sól í þeim málum,“ segir Halldór Karl.

Unnið í skipulagsmálum vegna skipaþjónustuklasa

Nú er unnið að undirbúningi fyrir hafnarframkvæmdir í Njarðvík vegna skipaþjónustuklasa sem þar mun rísa í tengslum við Skipasmíðastöð Njarðvíkur. Skipulagsmál eru í vinnslu núna og þær tillögur koma fram á næstu dögum. „Þegar þær tillögur eru komnar fram geta menn haldið áfram með þá vinnu sem talað hefur verið um“.

Engin stóriðja í Helguvík

Fyrir liggur að engin stóriðja rís í Helguvík á næstu árum en hafnarstjórinn á samt von á uppbyggingu þar til framtíðar sem mun skapa tekjur í hafnarsjóð. Einnig að vöruflutningar um höfnina aukist að nýju sem skilar vörugjöldum til hafnarinnar.