Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl

Fréttir

Fótbrotnaði við gosstöðvarnar
Föstudagur 16. júní 2023 kl. 23:25

Fótbrotnaði við gosstöðvarnar

Síðdegis í dag var björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík kölluð út vegna konu sem hafði dottið og fótbrotnað á gönguleiðinni að gosstöðvunum á Fagradalsfjalli.

Konan var hluti af hópi fólks sem var á leið að gosstöðvunum. Slysið varð á svokölluðum Stórhól. Lögregla, sjúkraflutningafólk og björgunarsveitarfólk fór upp göngustíginn til að hlúa að konunni og undirbúa flutning.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl

Ástand hennar var metið svo að einfaldast væri að fá þyrlu til flutnings, en þyrla Landhelgisgæslunnar var þá stödd á Ísafirði og ljóst að um tveggja tíma bið yrði eftir henni.

Konan var því verkjastillt, búið um hana í börum og flutt með buggy bíl niður af fjalli, til móts við björgunarsveitarbíl. Hún var svo flutt yfir í björgunarsveitarbíl sem fór með hana niður að þeim stað sem sjúkrabíll hafði komist á. Hún var svo flutt á sjúkrahús með sjúkrabíl.

Aðgerðum var lokið um 18:30, tveimur klukkustundum eftir að útkall barst.

Meðfylgjandi er mynd af vettvangi þar sem verið var að skipta frá buggy bíl yfir í björgunarsveitarbíl.

Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25