HSS
HSS

Fréttir

Forvörn íþrótta stórlega ofmetin - segir bæjarfulltrúi
Kristinn Jakobsson í ræðupúlti í bæjarstjórn Reykjanesbæjar.
Föstudagur 16. nóvember 2012 kl. 12:57

Forvörn íþrótta stórlega ofmetin - segir bæjarfulltrúi

„Forvörn íþrótta er stórlega ofmetin en tónlistar vanmetin,“ sagði Kristinn Jakobsson, bæjarfulltrúi framsóknar á bæjarstjórnarfundi í Reykjanesbæ nýlega.


Þetta sagði bæjarfulltrúinn í umræðu um aukna styrki til íþróttahreyfingarinnar í Reykjanesbæ en Gunnar Þórarinsson, Sjálfstæðisflokki og formaður bæjarráðs hafði sagt á undan að íþróttir væru besta forvörn fyrir ungmenni en það kom einnig fram í ræðu eins fulltrúa ungmennaráðs á bæjarstjórnarfundinum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Í fjárhagsáætlun Reykjaensbæjar fyrir árið 2013 sem var kynnt á bæjarstjórnarfundinum er gert ráð fyrir verulegri hækkun á framlagi bæjarins til íþróttamála. Voru bæjarfulltrúar ekki sammála hvernig það ætti að gerast en töldu mikilvægt að það skilaði sér til lækkunar á æfingagjöldum en færi ekki í einhverja hít.