Bygg
Bygg

Fréttir

Forvarnir og fræðsla fyrir hjólafólk
Sunnudagur 4. júní 2017 kl. 05:00

Forvarnir og fræðsla fyrir hjólafólk

-Bifhjólaklúbburinn Ernir með forvarnardag á Ásbrú.

Bifhjólaklúbburinn Ernir stóð á dögunum fyrir forvarnardegi við félagsheimili sitt á Ásbrú. Markmið dagsins var forvarnir og fræðsla um öryggismál en með deginum vildi klúbburinn ná til ungra vélhjólakappa. Lögreglan á Suðurnesjum og Brunavarnir Suðurnesja tóku þátt í deginum.

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Sjúkraflutningamenn fóru yfir viðbrögð ef hjólamaður lendir í slysi og aðkomu að því. Lögreglan fór yfir öryggismál hjólamanna og síðan áttu hjólafólk og lögreglan gott spjall saman um hjólamenninguna.

Á forvarnardeginum var kynnt skemmtileg nýjung, sem er öryggisvesti fyrir hjólafólk sem blæs út ef hjólamaður fellur af hjóli sínu. Þá stóð lögreglan fyrir æfingaakstri hjóla með keilubraut.

Félagar úr Björgunarsveitinni Suðurnes mættu einnig á staðinn og tóku þátt í dagskránni sem svo lauk með grillveislu þar sem langsteikur voru grillaðar fyrir gesti.

 

Meðfylgjandi myndir tók Hilmar Bragi á forvarnardeginum.