Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Forvarnarstarf í umferðinni virkar
Fimmtudagur 27. maí 2004 kl. 15:16

Forvarnarstarf í umferðinni virkar

Aldrei hafa verið fleiri börn í bílum sem nota viðeigandi öryggisbúnað samkvæmt könnun Slysavarnafélagið Landsbjörg, Umferðastofa og Árverkni framkvæmdu í lok apríl.

Könnunin var gerð um allt land og tóku þátt í henni 2.810 börn við 85 leikskóla sem voru í 37 sveitafélögum

Könnunin staðfestir það að markviss fræðsla og áróður til almennings skilar sér í því að fleiri og fleiri nota réttan öryggisbúnað fyrir börn í bílum.

Eins og sjá má á þessu línuriti hefur verið stöðug aukning á notkun öryggisbúnaði barna í bílum og er notkun öryggisbúnaðar hér á landi með því mesta sem þekkist í Evrópu.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024