Bilakjarninn
Bilakjarninn

Fréttir

Forvarnardagur ungra ökumanna
Fimmtudagur 22. mars 2012 kl. 13:21

Forvarnardagur ungra ökumanna


Árlegur forvarnardagur ungra ökumanna var haldinn í 88 Húsinu í gær og tóku um 150 nemendur á fyrsta ári í Fjölbrautaskóla Suðurnesja þátt. Markmiðið með verkefninu er að vekja ungmennin til umhugsunar um þá ábyrgð sem fylgir því að fá bílpróf, fækka umferðaslysum og auka öryggi í umferðinni.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Nemendur fengu fræðslu um afleiðingar umferðarlagabrota, sektir, tjónaskyldu og brot gegn 3ja aðila, þau fengu að prufa ölvunargleraugu auk þess sem fíkniefnahundur leitaði af fíkniefnum sem búið var að fela á nokkrum stöðum.

Sviðsett var umferðarslys á planinu við 88 Húsið og fengu nemendur að sjá hvernig lögregla og sjúkraflutningamenn athafna sig þegar slys verður og klippa þarf bíl í sundur.

Eins og undanfarin ár voru grillaðar pylsur handa öllum þátttakendum.

Forvarnardagur ungra ökumanna er samstarfsverkefni Reykjanesbæjar, Lögreglunnar á Suðurnesjum, Brunavarna Suðurnesja, Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Tryggingamiðstöðvarinnar.