Fóru í ljósagöngu í tilefni af Degi leikskólans
Sjötti febrúar er merkisdagur í sögu leikskólans en á þeim degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara með sér sín fyrstu samtök. Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur 6. febrúar í leikskólum landsins og hefur svo verið gert um langt árabil.
Markmiðið með Degi leikskólans er að stuðla að jákvæðri umræðu um leikskólastarf og um leið beina athygli samfélagsins að því faglega og metnaðarfulla starfi sem innt er af hendi í leikskólum landsins á degi hverjum.
Í tilefni dagsins fóru börnin og starfsfólkið í leikskólanum Holti í Innri-Njarðvík í sína árlegu ljósagöngu að Akurskóla og sungin voru lög fyrir grunnskólanemendur. Tilgangur ljóssins er að varpa ljósi á leikskólabarnið, starf leikskólakennarans og mikilvægi leikskólans í samfélaginu.
„Við bjóðum góðan dag – alla daga“ eru einkunnarorð þessa ánægjulega dags.