Bygg
Bygg

Fréttir

Forstjóri Norðuráls hefur fulla trú á Helguvík
Sunnudagur 30. janúar 2011 kl. 15:06

Forstjóri Norðuráls hefur fulla trú á Helguvík


Álverið í Helguvík hefur verið eitt heitasta umræðuefnið á Suðurnesjum síðustu vikurnar og síðustu mánuði og hvort það verði álver á annað borð. Álverið gæti skilað 2000-3000 manns vinnu og nettó áhrif á hið opinbera er áætlað um 12 milljarða króna á ári eða um 1 milljarður króna á mánuði. Þetta eru verulega stórar upphæðir og fjölda mörg störf en þau eru líka fjölbreytt. Þarna myndu starfa stjórnendur og sérfræðingar, iðnaðarmenn, almennir starfsmenn í framleiðslu, þjónustufólk og verktakar í fastri vinnu en um 600 starfsmenn vinna í þessum störfum í álverinu á Grundartanga. Víkur-fréttir náðu tali á Ragnari Guðmundssyni, forstjóra Norðuráls, eftir atvinnufundinn í Stapanum í vikunni.


Hvað þarf til þess að Norðurál og HS Orka nái saman?
„Miðað við þá samninga sem við gerðum 2007 þá eru ákveðin skilyrði sem þarf að uppfylla í þeim og eitt af því er virkjanaleyfi. Til dæmis sem þarf að klára fyrir stækkun á Reykjanesvirkjun og svo auðvitað að vinna með sveitarfélögunum og til þess bærum aðilum í frekari leyfum og skipulagi, þ.e.a.s. í Eldvörpum og Krísuvík. Það þarf sömuleiðis að eyða óvissu varðandi eignarhald á HS Orku, hvort Magma Energy fær að eiga fyrirtækið eða hvort menn ætli að semja við Magma um að taka það yfir eða jafnvel að taka það eignarnámi. Það þarf auðvitað að fá niðurstöðu í það mál allra fyrst því það verður erfitt að ganga frá samningum um að koma af stað verkefni þegar ekki er vitað hvert stefnir í þeim málum. Sömuleiðis leggjum við áherslu á að endurskoðun raforkulaga verði lokið þannig að það sé ljóst hver flutningskostnaður er fyrir flutning á raforku fyrir stóriðju en það þarf að hafa á hreinu hver kostnaðurinn er í raun og veru.“

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Það hefur verið bent á það að þetta séu samningar á milli einkafyrirtækja en það kom nú skýrt fram á þessum fundi að það stefndi eitthvað upp á ríkið.
„Einkafyrirtæki hafa vald yfir tilteknum þáttum en starfa í því umhverfi sem er skapað af stjórnvöldum á hverjum tíma. Þetta er samstarfsverkefni á milli fyrirtækjanna og stjórnvalda, þá bæði við ríkisstjórnina og sveitarfélögin að koma þessum verkefnum á koppinn en til þess þurfa allir að taka í árarnar.“


Nú er spurt að því vikulega hérna á Suðurnesjum hvað sé að gerast í Helguvík.
„Það er auðvitað ekki mikið að gerast þarna eins og er því eftir hrunið 2008 þá drógum við verulega úr framkvæmdum og höfum verið í hægagangi síðan. Við höfum verið að vinna í ákveðnum þáttum varðandi verklegan undirbúning og hefur verið hópur manna að vinna í þeim málum. Sömuleiðis hafa verið ákveðnar framkvæmdir í gangi í samningi sem búið var að gera við ÍAV en auðvitað vonum við að geta farið á fulla ferð sem fyrst. Hvað okkur varðar að þá er okkur ekkert að vanbúnaði að fara af stað.”


Margir vilja halda því fram að það verði ekkert álver í Helguvík. Er eitthvað til í því?
„Við erum að vinna mjög ötullega að lausn við fjölda aðila. Iðnaðarráðherra tók ákveðið frumkvæði til dæmis síðastliðið haust og sveitarfélögin réðu ákveðinn verkefnisstjóra til að vinna að úrlausn þeirra mála sem ennþá eru óleyst þannig að ég hef þá trú að það sé fullur vilji þessara aðila til að leysa þessi mál. En auðvitað þarf að gera það sem allra fyrst.“
[email protected]