Fréttir

Forskráning í leik- og grunnskóla í Grindavík fyrir haustið 2026
Frá Grindavík. Mynd: grindavik.is
Laugardagur 7. febrúar 2026 kl. 06:08

Forskráning í leik- og grunnskóla í Grindavík fyrir haustið 2026

Grindavíkurbær hefur auglýst forskráningu í leik- og grunnskóla fyrir haustið 2026. Forskráningin fer fram í gegnum íbúagátt bæjarins og stendur yfir til og með 15. febrúar.

Samkvæmt upplýsingum frá bænum er markmið forskráningarinnar fyrst og fremst að meta raunverulega eftirspurn og kanna hvort raunhæft sé að halda úti skólastarfi í bænum næsta haust. Skráningin er hvorki bindandi fyrir foreldra né bæjaryfirvöld.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Þá kemur fram að ákvörðun um að hefja skólahald verður ekki tekin nema næg þátttaka fáist til að tryggja að unnt sé að halda úti faglegu skólastarfi í öruggu umhverfi.

Nánari upplýsingar veitir Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs Grindavíkurbæjar, í netfanginu [email protected]

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100