Fréttir

Forsætisráðherra tók skóflustungu að Knarrarneskirkju
Föstudagur 26. júní 2015 kl. 13:19

Forsætisráðherra tók skóflustungu að Knarrarneskirkju

- kirkja í 19. aldarstíl rís í túnfætinum að Minna-Knarrarnesi á Vatnsleyuströnd

Sig­mund­ur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráðherra tók fyrstu skóflustunguna að Knarrarneskirkju á þriðjudagskvöld. Kirkjan mun rísa í túnfætinum við Minna-Knarrarnes á Vatnsleysuströnd. Kirkjan verður bændakirkja í 19. aldar stíl sem hjónin Anna Rut Sverr­is­dótt­ir og Birg­ir Þór­ar­ins­son reisa. Forsætisráðherra sagði þegar hann tók skóflustunguna að athöfnin væri ein sú skemmtilegasta og mest uppörvandi opinbera athöfn sem hann hefði tekið þátt í.

Áður en skóflustungan var tekin helgaði séra Krist­inn Ágúst Friðfinns­son staðinn þar sem kirkjan mun rísa við svokallað Brandsleiði.

Nýliðinn þriðjudagur var mikill hátíðisdagur hjá ábúendum á Minna-Knarrarnesi. Birgir Þórarinsson fagnaði fimmtugsafmæli þennan dag. Þá var Sverrir sonur þeirra Birgis og Önnu Rutar að útskrifast sem verkfræðingur og Þórarinn er útskrifaður stúdent.

Ekki liggur fyrir hvenær Knarraneskirkja verður tilbúin en stefnt er á að það verði innan fimm ára þannig að hægt verði að ferma yngsta fjölskyldumeðliminn að Minna-Knarrarnesi í kirkjunni.

Ástæður þess að Sigmundur Davíð forsætisráðherra tók skóflustungu að kirkjunni má m.a. rekja til þess að Sigmundur á rætur til Minna-Knarrarness en stjórnarmyndunarviðræður Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks fóru einmitt fram á heimilinu að Minna Knarrarnesi.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024