Bygg
Bygg

Fréttir

Forsætisráðherra: Kaupmenn að tapa hundruðum milljóna á verðstríði lágvöruverðsverslana
Föstudagur 11. mars 2005 kl. 11:33

Forsætisráðherra: Kaupmenn að tapa hundruðum milljóna á verðstríði lágvöruverðsverslana

Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, segist nokkuð viss um að ef kaupmenn ætli sér að tapa fleiri hundruð milljónum króna á mánuði í verðstríði lágvöruverðsverslana, þá reyni þeir að ná kostnaðinum af neytendum, þó síðar verði.
„Ég botna nú bara ekkert í því hvernig menn geta selt mjólkina á eina krónu eða gefið hana. Þetta er fínt fyrir neytendur og fínt fyrir vísitöluna. Býst ekki við að þetta verði til langframa. Það er mín reynsla að það komi nú alltaf að því að neytendur borga þetta með einum hætti eða öðrum hætti,“ sagði forsætisráðherra í viðtali við Víkurfréttir í gærkvöldi.
Halldór Ásgrímsson kynnti sér verðstríð lágvöruverðsverslana í gærdag og skoðaði vöruúrval og verð í verslun Kaskó í Reykjanesbæ. Þar mátti fá mjólkurlítra á eina krónu og ýmsa ávexti á 6-7 krónur kílóið. Íslensk agúrka kostaði 12 krónur og gosdrykkir seldust fyrir nokkra tugi króna í 2ja lítra umbúðum.
Forsætisráðherra komst að því að kjötvara væri ennþá á eðlilegu verði og slagurinn væri ekki byrjaður um páskaeggin. Halldór hafði það á orði að hann hafi hugleitt það að fresta stjórnmálafundi sem hann hélt í Reykjanesbæ í gær og fara frekar að versla til heimilisins.

Myndirnar: Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, skoðar vöruúrval og verð í Kaskó í Keflavík ásamt þeim Hjálmari Árnasyni, alþingismanni, Skúla Þ. Skúlasyni, starfsmannastjóra Samkaupa hf og Guðjóni Stefánssyni, framkvæmdastjóra Samkaupa.

VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson

Bílakjarninn
Bílakjarninn