Forsætisráðherra á opnum fundi í Reykjanesbæ
Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, heldur opinn stjórnmálafund nk. fimmtudagskvöld, 10. mars kl. 20.00 í Listasafni Reykjanesbæjar, DUUS húsum. Á fundinum mun Halldór fara vítt og breitt yfir stöðu stjórnmálanna í dag og fundarmönnum gefast kostur á að leggja fyrir hann spurningar. Búast má við fjölmenni þar sem fjölmörg mál brenna á Suðurnesjamönnum.